Atvinna

Atvinna

Við stefnum skýjum ofar, viltu vera með?


Lykillinn að velgengni er mannauður

Markmið Rue de Net er að ráða yfir hæfu og metnaðarfullu fólki, þannig sköpum við jákvætt og skapandi vinnuumhverfi fyrir starfsfólk okkar og viðskiptavini.


Rue de Net er lifandi og skemmtilegur vinnustaður þar sem starfsfólkið telur um 35 manns. Rue de Net stuðlar að því að starfsmenn þróist í starfi og eru þeir hvattir til þess að sækja sér fræðslu sem eykur við hæfni þeirra og þekkingu og styrkir þá bæði í starfi og sem einstaklinga. Starfsmannafélagið Tólfan heldur uppi öflugu félagslífi með fjölbreyttum og skemmtilegum uppákomum.


Langar þig að starfa með okkur? Við hvetjum þig að senda inn starfsumsókn hér. Við erum alltaf að leita að metnaðarfullum og drífandi einstaklingum til þess að starfa með okkur.


Sækja um hér
Share by: