Við leitum að forritara
Vegna aukinna verkefna og umsvifa leitum við að metnaðarfullum og drífandi einstaklingum til þess að starfa með okkur. Ef þú hefur áhuga á að vinna á líflegum vinnustað og í framlínu tæknibreytinga þá erum við að leita að þér.
Rue de Net er hugbúnaðarhús í upplýsingatækni sem aðstoðar fyrirtæki og stofnanir við val og innleiðingu á viðskipta- og verslunarlausnum.
STARFSSVIÐ
- Forritun í viðskiptakerfum Microsoft Dynamics 365 Business Central / Dynamics NAV
- Forritun vefverslanakerfa í Microsoft .NET (C#)
- Forritun skýjalausna fyrir Microsoft Azure
HÆFNISKRÖFUR
- Háskólapróf í verkfræði eða tölvunarfræði
- Þekking og reynsla af Microsoft hugbúnaði
- Samskiptahæfileikar og góð þjónustulund
- Frumkvæði og öguð vinnubrögð
Við hvetjum konur jafnt sem karla til að sækja um starfið.
Nánari upplýsingar veita Torfi Markússon (torfi@intellecta.is) og Thelma Kristín Kvaran (thelma@intellecta.is) ráðgjafar hjá Intellecta í síma 511 1225.
Umsóknarfrestur er til og með 14.júní. Umsókn með ferilskrá óskast fyllt út á Intellecta. Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál.